
Sigurður Óli Árnason
Hæ, ég er Siggi.
Ég hef unnið með gervigreind í mörg ár og finnst fátt áhugaverðara en það sem hún gerir við vinnuna okkar, vinnustaðina og samfélagið. Hér held ég utan um það sem ég er að velta fyrir mér.
Það sem ég er að hugsa um
- Hönnun, þróun og innleiðing gervigreindarlausnaHvað þarf til að lausn fari úr tilraun og verði hluti af daglegri vinnu fólks?
- Samvinna fólks og gervigreindarBestu lausnirnar sem ég hef séð eru þær þar sem sérfræðingurinn stýrir og gervigreindin léttir undir.
- Valdefling starfsfólksNú getur fólk smíðað sínar eigin lausnir. Hvernig geta vinnustaðir stutt við það?
- Siðfræði gervigreindar og samfélagsbreytingarOkkur er lofað meiri tíma. Hver byggir samfélagið sem á að taka á móti honum?
Skrif
Um mig
Ég lærði hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og gervigreind við Háskólann í Utrecht. Síðan hef ég unnið við vöruþróun, ráðgjöf, spjallmenni og spunagreind. Ég bý í Reykjavík.

Bjóddu mér í kaffi.
Ef þú vilt spjalla um eitthvað af þessu, sendu mér línu á [email protected] eða finndu mig á LinkedIn.
